Ungbarna og smábarnavernd á íslandi er ókeypis. Tilgangur hennar er að staðfesta eðlilegan vöxt og þroska barnsins, eðlilegt
ástand móður, greina möguleg vandamál á byrjunarstigi og síðast en ekki síst fræða um umönnun og næringu barnsins. Eftir
að móðir útskrifast með barn sitt af fæðingardeild hefst ungbarnaverndin.
Ljósmóðir og læknar annast ungbarnavernd. Þroskamat við 3 ½ og 5 ára aldur er gerir heilsugæsluhjúkrunarfræðingur í
samvinnu við lækna og ljósmæður.
Fæðingum á stofnuninni var hætt 2006. Eignist konan barnið annarstaðar þarf hún að hafa strax og heim er komið samband við
ljósmóður til að mæla sér mót.
Fyrstu vitjanirnar eru í heimahús og fjöldi þeirra mismunandi eftir þörfum og aðstæðum. Eftir að heimaskoðunum líkur, koma
móðir/foreldrar reglulega með barnið í skoðanir á heilsugæslustöðina allt þar til skólaganga þess hefst.
Í heimavitjunum er foreldrum veitt fræðsla og stuðningur. Fylgst er með vexti og þroska barnsis, tenslamyndun foreldra og barns og líkamlegri og andlegri
líðan móður. Barnið er viktað og skoðað, og rætt um brjóstagjöf, næringu, skynjun og þroska barnsins, grindarbotnsæfingar og
aðrar æfingar, slysavarnir barna og ýmislegt fleira.
Í ungbarnaeftirlitinu á heilsugæslustöðinni er gert það sama og í heimavitjunum auk læknisskoðanna barnsins og
ónæmisaðgerða sem nauðsynlegar eru til að verja barnið hættulegum sjúkdómum.
Fyrsta vika eftir heimkomu
Vitjun í heimahús
Á 4 viku eftir heimkomu
Vitjun í heimahús og/eða koma á heilsugæslustöð - eftirlit
6 vikna gamalt
Læknisskoðun
2. mánaða
Almennt eftirlit
3. mánaða
Fyrsta bólusetningin, í einni sprautu er sprautað gegn kíkhósta,barnaveiki, stífkrampa, haemofilus influenzae b-stofni og mænusótt
5. mánaða
Endurtekin sama bólusetning og 3ja mánaða
6. mánaða
Læknisskoðun og bólusetning gegn heilahimnubólgu af völdum meningococca af C – stofni (tímasetning gæti breyst síðla árs 2003)
8. mánaða
Almennt eftirlit og bólusetning gegn heilahimnubólgu af völdum meningococca af C – stofni (tímasetning gæti breyst síðla árs 2003)
10. mánaða
Læknisskoðun og þroskamat
12. mánaða
Endurtekin sama bólusetning og 5 mánaða
18. mánaða
Læknisskoðun, þroskamat og barnabólusetning í einni sprautu gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum
2 ára
Almennt eftirlit
3 1/2 ára
Læknisskoðun, þroskamat, sjón- og heyrnarpróf
5 ára.
Læknisskoðun, þroskamat, sjón- og heyrnarpróf og barnabólusetning í einni sprautu gegn barnaveiki, stífkrampa og kíkhósta

