Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð

Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð

Snuðnotkun er þín ákvörðun

Þarfir barnsins:
Þegar barn fæðist hefur það ekki þörf fyrir snuð. Það þarfnast einungis fæðu, hlýju, öryggis og ásta. Brjóst þín uppfylla allar þessar þarfir.

Sogaðferð:
Nýfætt barn hefur meðfætt sogviðbragð, og það lærir að sjúga af fyrsta hlutnum sem það sýgur af. Það er munur á aðferð við að sjúga snuð annars vegar eða að sjúga brjóst hins vegar.

Barn sem sýgur brjóst hefur munninn fullan af vörtu og vörtubaug. Við notkun snúðs er allt önnur aðferð notuð. Barn sýgur inn kinnarnar og það sýgur nálægt brún snuðsins. Það setur lítinn stút á munninn og hefur hann næstum lokaðann.

Ef barn hefur ekki fengið að sjúga brjóst í byrjun, mun það sjúga bróstið á sama hátt og snuðið. Það getur leitt til vandamála við bróstagjöf s.s. sárra varta og minni mjólkurframleiðslu sem aftur getur leitt til lélegrar þyngdaraukingu barnsins. Það koma stundum fyrir aðstæður þar sem ráðlagt er að nota snuð. Til dæmis ef þú hefur ekki tækifæri eða longun til að brjóstfæða. Ef ráðlagt er að nota snuð þá mælum við með gamaldags snuði sem er alveg kúlulaga. Barn þitt sleppir því auðveldlega er það verður svangt.

Þér er ráðlagt að nota ekki snuð fyrir barn þitt fyrr en það hefur en það hefur alveg fullkomlega náð tökum á bróstagjöfinni og að það er komin næg mjólk.

Það er mögulegt að brjóstfæða barn sem notar snuð, en það krefst meiri nærgætni og það þarf að varast vandamál eins og:

-Barnið sefur lengur með snuð og það finnur ekki til svengdar eins fljótt( Það snuðar sig um gjafir). Þetta getur leitt til þess að barn sjúgi sjaldnar bróstið sem aftur leiðir til minni mjólkurframleiðslu. Það er einnig aukin hætt á bróstabólgu.

-Barnið vaknar ekki fyrr en það er orðið mjög svangt, óþolinmótt og grátandi. Þetta getur valdið vandamálum við gjafir og sárum geirvörtum.

Málfríður Stefanía Þórðardóttir
Hjúkrunarfræðingur og ljósmóðurnemi
Mars 2002

UPPLÝSINGAR!

Skiptiborð Siglufirði
460-2100
Tímapantanir og
endurnýjun lyfseðla:
8-16 virka daga
Símaviðtalstími lækna
13:00-13:45 virka daga

Skiptiborð Ólafsfirði
466-4050
Tímapantanir:
8-16 virka daga
Símaviðtalspöntun og
endurnýjun lyfseðla
8-12 virka daga

Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar

Minningarkort og heillaskeyti
Sími: 663-2277

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning