Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð

Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð

Skólaheilsugæsla

Í september 2002 hóf Þorsteinn Bjarnasonstörf sem skólahjúkrunarfræðingur, við Grunnskólann á Siglufirði með viðveru í báðum skólahúsum á auglýstum tímum. Um er að ræða 50 % stöðu frá kl. 8:00 til kl. 12:00 á virkum dögum. Viðvera skólahjúkrunarfræðingsins verður á mánudögum og þriðjudögum í efra-skólahúsi og miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga í neðra skólahúsi. Þó er gert ráð fyrir hreyfanleika hjúkrunarfræðings milli skólahúsa eftir aðstæðum.

Markmið skólaheilsugæslu.
  • Bæta andlega og líkamlega heilsu og líðan skólabarna.
  • Auðvelda aðgengi barns að faglegum stuðningi.
  • Auðvelda kennurum að vísa vandamálum til heilsugæslu.
  • Auðvelda samskipti foreldra skólabarna við heilsugæsluna.
  • Með viðveru skólahjúkrunarfræðings er skólabörnum gert kleift að leita aðstoðar með margvísleg heilsufarsleg vandamál, andlega vanlíðan eða til að spjalla um mál sem þeim eru hugleikin. Skólahjúkrunarfræðingurinn starfar sem milligöngumaður eða stýring á samskiptum barnanna, kennara og foreldra við heilsugæsluna og sem samstarfsmaður sérfræðinga á borð við sálfræðing, talmeinafræðing, þroskaþjálfa og fleiri sem að málum koma. Meginmarkmiðið er að tryggja opin og virk samskipti allra hagsmunaaðila skólabarnanna til að bæta líðan þeirra í skólanum.

Framkvæmd.
  • Hjúkrunarfræðingur í 50% stöðu.
  • Viðvera skólahjúkrunarfræðings í báðum skólahúsum.
  • Teymisvinna: Skólahjúkrunarfræðingur, heilsugæslulæknir, skólastjórnendur, kennarar, sálfræðingur (og aðrir sérfræðingar) og foreldrar skólabarna.
  • Skólaskoðanir.
  • Stöðluð spurningablöð til skólabarna.
  • Kynningarátak á heilsugæslu t.d. fyrir 9. bekk.
  • Sérstök heilsuverkefni og forvarnastarf.
  • Mikil áhersla er lögð á ræktun tengsla og myndun trausts milli skólabarnanna og skólahjúkrunarfræðings en það er grunnur þess að vel gangi að leysa úr vandamálum og erfiðleikum sem upp koma. Þessi traust og tengslamyndun getur tekið langan tíma en hver dagur vinnur með okkur að settu marki. Mikið veltur á því að samskipti séu góð á milli allra sem koma nálægt áðurnefndri teymisvinnu og þar er þáttur foreldra og kennara stór.
  • Skólaskoðanir eru mikilvægt tæki til að komast að því hvernig börnunum líður því þar gefst tækifæri til að nálgast þau á einstaklingshæfan hátt og reynist þeim oft auðveldara að tjá áhyggjur sínar, vanlíðan og vellíðan. Skólaskoðanir eru ekki eingöngu til þess að huga að líkamlegu ástandi barnanna heldur einnig til að komast að andlegu ástandi þeirra. Þar koma einnig stöðluð spurningablöð við sögu en þar gefst börnunum kostur á að tjá sig um líðan sína.
  • Til stendur að kynna heilsugæslustarfið fyrir 9. bekkingum og reyna með því að efla áhuga þeirra á eigin heilsu og eyða mögulegum ótta þeirra og vanþekkingu á því starfi sem þar fer fram.

Forvarnastarf er mikilvægur þáttur í skólaheilsugæslu því með góðum forvörnum er hægt að minnka hættuna á heilsufarsvandamálum sem upp kunna að koma síðar á lífsleiðinni. Í þessu felast m.a. forvarnir og fræðsla á sviði reykinga, áfengis og annara fíkniefna, kynsjúkdóma, næringar og hreyfingar o.f.l.

Skólaheilsugæsla er mikilvægt starf sem getur tryggt bestu mögulega líkamlega og andlega heilsu þeirra sem okkur öllum er dýrmætast, börnunum okkar. Með opnum og hreinskilnum samskiptum getum við náð að skapa börnunum heilsusamlegt og þægilegt umhverfi sem þeim líður vel í.

Skólalæknir, Valþór Stefánsson mun vera í skólanum þriðjudögum 8:30-9 í efra-skólahúsi og neðra-skólahúsi á fimmtudögum frá 8-9

UPPLÝSINGAR!

Skiptiborð Siglufirði
460-2100
Tímapantanir og
endurnýjun lyfseðla:
8-16 virka daga
Símaviðtalstími lækna
13:00-13:45 virka daga

Skiptiborð Ólafsfirði
466-4050
Tímapantanir:
8-16 virka daga
Símaviðtalspöntun og
endurnýjun lyfseðla
8-12 virka daga

Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar

Minningarkort og heillaskeyti
Sími: 663-2277

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning