Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð

Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð

Niðurgangsfæði fyrir ungabörn

  • Sleppa heilmjólk í 12 klst. Brjóstabörn mega halda áfram á brjósti.
  • Ef uppköst, gefa lítið vökvamagn í einu, helst úr skeið eða litlu staupi, á 5-10 mín fresti.
  • Gefa ekki of kaldan vökva. Láta standa við stofuhita.
  • Vökvaþörf barna innan 2 ára er u.þ.b. 100 ml fyrir hvert kg líkamsþunga, á sólarhring.
Byrja með Semper salt-og sykurbland (fæst í apótekinu), bætt út í 1 lítra af soðnu vatni.
Má bragðbæta með smávegis sólberjasaft.
Ath. að barn sem neitar alfarið þessari salt/sykurlausn, er yfirleitt ekki farið að þorna upp vegna vökvataps.

Fljótlega, yfirleitt innan 12 klst. má fara að gefa:
AB-mjólk, LGG-mjólk, yougurt, banana, eplamauk, gulrótarmauk, ristað brauð, kartöflur, fisk, magurt kjöt og drekka með vatn, sojamjólk og jafnvel kúamjólk, þynnta í byrjun.

Forðast: Eplasafa, appelsínusafa, kók og aðra gosdrykki, svo og orkudrykki, eins og t.d. Gatorade, vegna hás sykurinnihalds og osmólar þéttni, sem gæti aukið á niðurganginn. Sömuleiðis skyldi varast te vegna lágs saltinnihalds og kjötseyði v/mikils saltinnihalds.

Þegar bætt hefur verið úr áunnu vökvatapi, má byrja með venjulegt fæði fyrir aldur, en fara þó áfram varlega í ávaxtasafana.


Heimild:
(Byggt á tillögum bandarísku barnalæknasamtakanna, AAP, í Pediatrics, vol.97 mars 1996) Þröstur Laxdal, barnalæknir

UPPLÝSINGAR!

Skiptiborð Siglufirði
460-2100
Tímapantanir og
endurnýjun lyfseðla:
8-16 virka daga
Símaviðtalstími lækna
13:00-13:45 virka daga

Skiptiborð Ólafsfirði
466-4050
Tímapantanir:
8-16 virka daga
Símaviðtalspöntun og
endurnýjun lyfseðla
8-12 virka daga

Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar

Minningarkort og heillaskeyti
Sími: 663-2277

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning