Tilgangur:
Að rannsaka hvernig hjartað bregst við og þolir líkamlega áreynslu.
Að rannsaka hvernig hjartað bregst við og þolir líkamlega áreynslu.
Framkvæmd:
Viðkomandi er tengdur með leiðslum við tölvu sem skráir nákvæmlega virkni hjartans á meðan að
á prófinu stendur. Sá sem prófaður er þarf að hjóla á þrekhjóli og sér tölvan um að mótstaðan aukist
jafnt og þétt. Mikilvægt er að sá sem er í rannsókninni segi strax frá öllum einkennum s.s. vanlíðan, brjóstverk o.fl.
Flestum finnst betra að vera í léttum fötum (t.d. joggingfötum) og skóm á meðan að á prófinu stendur.
Úrlestur:
Læknir á stofnuninni les úr niðurstöðum en sendir þær einnig til hjartasérfræðings til
nánari úrlestrar. Lokaniðurstöður liggja því ekki alltaf fyrir fyrr en eftir 2-3 vikur.
Gjald:
Gjaldtaka fyrir prófið fer eftir gjaldskrá Tryggingarstofnunar ríkisins á hverjum tíma.

