Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð

Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð

24 tíma hjartalínurit

Tilgangur:
Að taka sólarhringshjartalínurit við venjubundnar athafnir daglegs lífs. Oft er tilgangurinn að reyna að ná á rit hjartsláttaróreglu sem kemur og fer og sést því ekki alltaf á venjulegu hjartalínuriti.


Framkvæmd:
Lítið upptökutæki er tengt við viðkomandi með fjórum leiðslum á brjóstkassann. Tækið er síðan fest með belti utan um mitti. Viðkomandi þarf síðan að skrá á sérstakt eyðublað (dagbók) hvað hann hefur fyrir stafni þennan sólahring, sérstaklega ef hann finnur fyrir hugsanlegum einkennum frá hjarta. Eftir 24 klst kemur viðkomandi aftur á stofnunina þar sem tækið er aftengt.

Úrlestur:
Upptökusnældan er send til úrvinnslu á Landspítala háskólasjúkrahús. Svarið berst aftur u.þ.b. 2 vikum síðar.

Gjaldtaka:
Gjaldtaka fer eftir gjaldskrá Tryggingastofnunar ríkisins á hverjum tíma

UPPLÝSINGAR!

Skiptiborð Siglufirði
460-2100
Tímapantanir og
endurnýjun lyfseðla:
8-16 virka daga
Símaviðtalstími lækna
13:00-13:45 virka daga

Skiptiborð Ólafsfirði
466-4050
Tímapantanir:
8-16 virka daga
Símaviðtalspöntun og
endurnýjun lyfseðla
8-12 virka daga

Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar

Minningarkort og heillaskeyti
Sími: 663-2277

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning