Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð

Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð

Fréttir

Bólusetning gegn H1N1v

Bólusetning gegn H1N1v „svínainflúensu“ „mexicoinfúensu“ mun hefjast í næstu viku fyrir þá sem eru með einhverja eftirfarandi undirliggjandi sjúkdóma;
  • Hjartasjúkdóma einkum hjartabilun, alvarlega kransæðasjúkdóma og alvarlega meðfædda hjartasjúkdóma.
  • Öndunarfærasjúkdóma sem þarfnast stöðugrar fyrirbyggjandi lyfjameðferðar (meðal annars astma).
  • Hormónasjúkdóma (insúlínháða sykursýki og barksteraskort).
  •  Tauga- og vöðvasjúkdóma sem truflað geta öndun.
  •  Alvarlega nýrnabilun.
  • Alvarlega lifrarsjúkdóma (skorpulifur).
  •  Offitu
  • Ónæmisbælandi sjúkdóma (á til dæmis við um krabbameinsmeðferð og líffæraþega).
Ef þú telur þig vera í einhverjum þessara hópa vinsamlega skráðu þig hjá móttökuritara alla virka daga fyrir hádegi. Einstaklingar eru síðan kallaðir inn í bólusetningu.
Okkur berst takmarkað magn bóluefnis í hverri viku, Því mun bólusetningu einstaklinga í áhættuhópum ekki ljúka fyrr en um miðjan nóvember. Þá munu börnum 6mánaða-18 ára verða boðið bólusetning og að því loknu öllum öðrum íbúum.
Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið elin.arnardottir@hssiglo.is og annagils@hssiglo.is

Bóluefnið er öllum að kostnaðarlausu en greiða þarf komugjald skv. gjaldskrá.


UPPLÝSINGAR!

Skiptiborð Siglufirði
460-2100
Tímapantanir og
endurnýjun lyfseðla:
8-16 virka daga
Símaviðtalstími lækna
13:00-13:45 virka daga

Skiptiborð Ólafsfirði
466-4050
Tímapantanir:
8-16 virka daga
Símaviðtalspöntun og
endurnýjun lyfseðla
8-12 virka daga

Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar

Minningarkort og heillaskeyti
Sími: 663-2277

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning